Notendaskilmálar korta

Skilmálar vefverslunar Kópavogs v/Bókasafns Kópavogs

Velkomin í vefverslun Bókasafns Kópavogs sem er í eigu og rekstri Kópavogsbæjar kt. 700169-3759, Digranesvegur 1, 200 Kópavogur, VSK nr. 93241.

Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Bókasafn Kópavogs.

Greiðslur fyrir bókasafnskort fást ekki endurgreidd.

Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Bókasafns Kópavogs samþykkir þú þessa skilmála.

  1. SKILGREININGAR
    Eftirtalin hugtök hafa þessa merkingu þar sem þau koma fyrir í skilmálum þessum:
    - Fullorðinn eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri.
    - Kortin eru sjálfsafgreiðslukort

  2. NOTENDAREGLUR.
  1. GJALDSKRÁ
    Kópavogsbær gefur árlega út gjaldskrá fyrir stofnanir Kópavogsbæjar. Gjaldskrá hvers árs er aðgengileg á heimasíðu Bókasafns Kópavogs   og hangir uppi á starfsstöðum.

  2. VANEFNDIR, LOKUN KORTA
    Ef korthafi gerist brotlegur við notendareglur samkvæmt skilmálum þessum hefur Kópavogsbær heimild til að afturkalla og loka korti fyrirvaralaust.

  3. GREIÐSLUVANDAMÁL
    Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.

  4. MISNOTKUN Á KORTUM
    Verði einstaklingur uppvís að því að framvísa/nota kort sem skráð er á annan einstakling hefur Kópavogsbær heimild til þess að loka viðkomandi korti.

  5. PERSÓNUUPPLÝSINGAR
    Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.